bjössi
12.06.2007 23:36:27 / Bjössi

And we'll love again, we'll laugh again We'll cry again and we'll dance again.

Ohoyoy

Ég veit. að það er óvanalega stutt bil síðan ég bloggaði síðast og núna. Ástæðuna veit ég ekki.

en allavega here i go.----

 

 

 

Föstudagurinn var æði. Ég hitti hana Huldu mína um kvöldið og var það æðislega gamann, Við fórum ofkors á rúntin fyrst að hún er orðin svona gömul og komin með bílpróf. Við keyrðum,, já útum allt og fórum að skoða gamla húsið hennar. Hún hulda snillingur fann Besta stæðið í götunni, Oná kannti sem var of hár og rústaði bílnum undir.. En Þetta hús var ekkert smá flott allavega og staðurinn frábær, Rólegur og þæginlegur. Öfunda þig að hafa átt heima þarna lov.
eftir það vissum við ekkert hvað við áttum að gera, svo að við enduðum með að gá hvort það væri eitthver mynd í Bíó. Við komum um leið og Oceans'13 og var það frekar spes mynd. Hélt að hún væri töluvert betri en þetta var ágætis skemmtun í frábærum félagsskap. Takk fyrir Poppið :-



 

 

 

Það sem stendur uppúr er svakalegur vinnutími um helina og ég lifði hann af. þetta var semsagt laugardagur frá 09:00 til 18:30 svo aftur um kvöldið frá 21:00 til 06:oo um nóttina. svo aftur sunnudagsmorgun frá 09:00 til 15:30. Þetta var rosalegt, en skemmtileg tónlist og ágætis félagsskapur reddaði þessu. Reyndar þoldi verslunnarstjórinn ekki xið 977 lengu sem er skrítið því að hann er ungur,, og hann setti létt bylgjuna á. SEM var frábært því að það var verið að spila White Ladder plötuna með David gray í gegn. Snilld. Ég hékk annars mest með einari sem er ekkert smá spes gaur en hann var skárstur á staðnum. Ég og Einar fengum það svakalega verkefni að panta pizzu fyrir liðið.. Við gerðum það af sjálfsögðu, en það endaði soldið illa.. Þar sem við voru bara 6 þá voru 3 tvennutilboð OF mikið. það eru heilar sex pizzur eða heil ein á mann.. Svo hennti hann kókinu inná frysti og það var frosið. aftur sex kók eða ein á mann. Sem btur fer borguðum við þetta ekki helur var þetta skrifað á Samkaup (Yfirfyrirtæki nettó).. þótt ótrúlegt sé þá kláriðst pizzan kl 11 morgunin eftir

 


Meira frá talningunni : Ég björn sævar. Taldi allan osta/mjólkur/grænmetiskælinn og var það ekkert smá mikið verk. Vigta þurfti ostana eggin og grænmetið.. semsagt bakið á mér er ónýtt heldég og heilinn líka.. Ég tók mér reglulega pásu þó og fór út að fá mér ferskt loft sem Einar skemmdu þegar hann kom alltaf með og fór að reykja útí ferskaloftið mitt, svo var hann ða kynna mér fyrir tónlistinni sinni. Sem er Dauðarokk dauðann. ég verð soldið hræddur við hann.
þetta skilar mér þó alltsaman dágóðum peningi í vasan og svona. Núna á ég salt í grautinn ? eða er það sykur ?


Allavega, Nóg um þetta með vinnuna, ég hefði þá viljað kíkja til guðnýjar þetta kvöld og hitta alla saman, en það þarf að bíða betri tíma. Vona innilega að þetta hafi heppnast vel og þið hafið skemmt ykkur elskurnar. Þið eigið það skilið.. Styttist einnig í að Brynjan komi heimfrá Rhodos sem þýðir að ég verð ekki einmanna í vinnunni lengur ! og ef þú lest þetta brum brum !! þá vil ég bara segja góða ferð heim og komdu heil heim líka. Allavega þá fer ég ekkert til útlanda í sumar og ættla ég mér bara að reyna að fá sem mest útúr þessu sumri. einsog líklea allir. Langar að það verði eftirminnilegt allavega.

Smá fréttir af Tónlist. EN ; Angels and Airwaves eru að fara að gefa út plötu einsog ALLIR ættu að vita, en þeir Tom og félagar hafa ákveðið nafn á meistarastykkið.. Nafni á að vera 'I Empire' og á platan að stana undir nafni. Platan er væntanleg í lok 2007. Það sem er einnig í fréttum af bandinu er það að það er kominn nýr bassaleikari ! já það er rétt. Matt wachter heitir hann og fyrir þá sem ekki vita þá var hann bassaleikarinn í Stórhljómsveitinni 30 secounds to mars. Það er einnig skemmtilegt að segja frá því að Tom og Jaret Leto (Lead singer í 30 sec to mars) eru vinir og kynntist Tom honum Matt W. í gegnum hann. Svona er heimurinn lítill ha =>.

 

 

NÝ TÓNLIST ;

 

Marilyn Manson - Eat me, Drink me.

 

 

The Gallows - Abandon ship.

 

 

Paramore - Riot

 

 

The Clash - The singles

 

 

Queens Of The Stone Age - Era Vulggaris

 

 

 

 

Tonight Is Goodbye - The Birds And The Bees.

 

 

TÓNLEIKAR ;
AIR

Húsið opnar kl 19.00
Tónleikar hefjast kl 20.00

Uppselt er í palla & stúku.

ATH stúkan og pallarnir verða ónúmeruð
18. ára aldurstakmark, nema í fylgd með forráðamanni.

Einungs er hæt að fá miða í stæði og er það verð ekki nema 3900kr.


Dagsettning ; 19.06.07 (19 Júni )

Staðsettning ; Laugardalshöll!

Tímasettning ; 20:00

Aldurstakmark : Já ! 18 ár.

Miðaverð ; Pallar - 4500 (UPPSELT)
Stæði - 3900
Stúka - 5500(UPPSELT)

 

 

 

CHRIS CORNELL !

 

 

 

Í fyrsta skipti á sviði, flytur Chris Cornell ásamt hljómsveit,
alla smellina frá Soundgarden, Temple of the Dog og Audioslave

Auk þess má búast við smellum frá sólóferlinum á borð við "You Know My Name" úr nýjustu James Bond myndinni.




Miða verð er 8900kr í stúku og ekki nema 5900 í stæði
Staðsettnig er Laugardalshöll!

EKKI missa af þessu, nei takk. og ekkert aldurstakmark.
Þetta tækifæri gefst ekki oft. Hver kemur með mér ? :P


Dagsettning ; 08:09.07 ( 8 sept )
Staðsettning ; Laugardalshöllin
Tímasettning ; hús opnar 20:00
Aldurstakmark ; NEI

Miðaverð ; Stúka - 8900
Stæði - 5900
THE RAPTURE
The rapture snúa aftur gott fólk!
Dagsettning ; 26.06.07 - Þriðjudagur
Staðsettning ; Nasa

Tímasettnig ; 21:00
Aldurstakmark ; já! 18 ár.
Miðaverð ; 3900kr

 

 

 


» 9 hafa sagt sína skoðun

22.05.2007 19:40:49 / Bjössi

Where did i go wrong?, i lost a friend.!

 

 

Hvert sem maður fer, hvert sem maður snýr þá er fólk alltaf að tala um hversu ósátt það er með eigin líkama. Verið þakklát fyrir að hafa líkama. Ekki eyða lífinu að metast um hver er með fallegri líkama og ekki dæma hina ef þeirra líkami er ekki einsog þú villt hafa hann. Ekki láta lífið hverfa á meðan þú ert að reyna að vera sá sem heimurinn vill að þú sért. vertu þú, þannig eignastu það sem allir þrá, hamingju, vellíðan og góða og trausta fjölskyldu. Langaði að koma þessu á framfari.

 

 

Langt síðan síðast. blogg?

 

Loksins eru prófin búinn. Prófin hafa gengið frekar vel og einkunnirnar ekki slæmar. Nú tekur óvissan við, hvar á að vinna, hvað á að gera og hvernig. Botna ekkert í þessu. Annars tek ég þá aukavinnu sem mér býðst í Nettó en það vill svo til að það er líklega eitt það leiðinlegasta sem ég hef unnið við. Skúringarvinnan er ágætt. Tónlistin í botni og engin nálægt mér. Frekar næs. En sú vinna verður ekki lengi en kemur aftur í vetur. Ágæti speningur sem kemur frá þessu.

 

 

Síðast liðnu dagar hafa verið frekar venjulegir og þar af leiðandi er bara eiginlega ekkert að segja. Reyndar. ég var í ræktinni í gær og var nýbúinn í sturtu. ég var einn inn í klefanum og skápurinn minn frekar nálægt hurðinni því miður. allavega ég var sem betur fer buin að koma mér í nærbuxur þegar að tvær stelpur labba inní klefann og þær föttuðu ekkert fyrr en að þær voru að fara að klæða sig úr. Hvernig er þetta hægt ? þetta var mjög spes og mér brá frekar mikið. en þær Roðnuðu ekkert smá og hlupu flissandi út. og ég var bara einn eftir að reyna að átta mig á hvað væri að gerast. Það sem bætir þetta ekkert er það að þetta var ein af stelpunm sem ég vann með þarsíðasta sumar.

 

Fótboltinn er einnig í óvissu, á að halda áfram eða ekki? ég veit ekkert hvað ég vill en ég finn það út í sumar. Vil samt líka taka það framm að HK er komið í Landsbankadeildina loksins og spila það gæðafótbolta með frábæran liðsanda og enn betri baráttu og ákveðni. HK vann ÍA í gærkvöldi 1-0 og hef ég aldrei verið jafn stoltur af þeim. Komnir með 4stig. Andin á vellin og spennan í loftinu er óbærileg. Þetta get ég ekki gert skilið við, en maður verður samt svolítið þreyttur á þessu.

 

 

Mikey Way er nú giftur maður og er í brúðkaupsferð sinni með sinni heitt elskuðu mær. Strákarnir í bandinu hafa gefið honum allan þann stuðning sem að maður getur mögulega beðið um. Mæli með að þið skoðið bréfið sem Gerard Way skrifaði til hanns. það er ótrúlega fallegt. En bandið hefur fundið mann til að taka við á meðan. Sá maður heitir Matt Cortez og hefur hann verið að vinna með My Chemical Romance í nokkur ár sem Gítar-skrifarið (Blink höfundur) Og kann hann því nokkuð vel á þetta. Mikey Way er ekki væntanlegur á næstunni til baka, en hann kemur.

 

 

Mikey Way Matt Cortez

 

 

 

 

 

 

Ný Tónlist ;


THE USED – LIES FOR THE LIARS

Þessi plata er listaverk eyrnanna. Mæli með henni,  bert er kominn aftur og aldrei verið betri. leyfið tónunum að lifa, og þið verðið ekki fyrir vonbrigðum.

 

LINKIN PARK – MINUTES TO MIDNIGHT.

Sjálfur er ég ekki mikill aðdáandi Linkin Park en þessi plata kom á óvart. Ekkert til að hrópa húrra fyrir samt. en hún er ekki léleg.

 

FUNERAL FOR A FRIEND – TALES DON’T TELL THEMSELVES.

Strákarnig eru komnir aftur. Gjörbreyttir og eru með allt aðra tónlistarstefnu hér á þessari plötu, Hún hefur einnig fengið mjög góða dóma frá tónlistarunendum.  

BIFFY CLYRO – PUZZLE

Þessi plata hefur verið á toppi breska Billbord listand í góða tíma og margir slagarar af henni einnig. Frábææææær plata. Eignastu hana strax.  

APOCALYPTICA – THE LIFE BURNS (DVD)

Þú villt ekki missa af þessum DVD disk. Þetta eru ekkert smá flottir tónleikar og fær maður fiðring í magan við það eitt að horfa á þá spila. Ville Valo kemur einnig við sögu á þessum disk.

 

 

 

 

 Takk fyrir mig og að lesa<3 


» 4 hafa sagt sína skoðun

11.05.2007 22:17:21 / Bjössi

HIM, life


» 1 hafa sagt sína skoðun

17.04.2007 00:42:36 / Bjössi

things


AIR Á KLAKANUM 19 JÚNÍ - LAUGARDALSHÖLL

BLOC PARTY Á AIRWAVES - Í HAUST

CANNIBAL CORPSE - Laugardagurinn 30. Júní - Kl. 21:30 OG Sunnudagurinn 1. Júlí - Kl. 18:00 (NASA)

PETER BJORN AND JOHN - FÖSTUDAGINN 13 APRÍL. (NASA)

 

GUS GUS TÓNLEIKAR LAUGARDAGINN - 21 APRÍL KL 23:00 (NASA)


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.03.2007 01:19:22 / Bjössi

MCR

 

 

 

My chemical romance - I Don't Love You


My Chemical Romance eru búinir að gefa frá sé nýtt video við lagið I Don't Love You, Þetta lag er með mínum uppáhalds með þeim.Bara að hlusta hvernig hann syngur lagið, hvernig hann segir sum orðin.

Marc Webb Stýrði þessu tónlistarmyndbandi en hann hefur ennig stýrt þremur öðrum tónlistarmyndböndum frá my chemical romance, en það voru myndböndin, Helena, I'm not okay og The Ghost of you sem voru öll af plötunni three cheers for sweet revenge, og voru öll þessi lög stórir smellir um allan heim.

Marc Webb var valinn til að leikstýra myndbandinu í staðin fyrir Sam Bayer sem leikstýrði myndböndunum Welcom to the black parade og Famous last words. Mér persónulega finnst Marc Webb vara með fallegri myndbönd en Sam Bayer er frábær líka.

Myndbandið er um elskendur í undarlegum, öðruvísi og fallegum heimi og myndbandið virðist segja þá sögu um hvernig ást þeirra og umhyggja hægt og hljóðlega dofnar þar til eitt þeirra fer. en það sem er í raun að gerast er það að ást þeirra er að verða ótakmörkuð og það gerir annan aðilan hræddan og sá aðili fer og reynir að lifa áfram, finna nýja ást sem aðilin veit sjálfur að það verður ekki aftur einsog áður var.
endinn á myndbandinu þegar gítarinn og magnarinn springa er það tákn um þróun ástarinnar í myndbandinu á milli þessa elskenda.
Þeir falla í þessari röð

Mikey Way, Ray Toro, Bob Bryar, Frank Iero, Gerard Way.

Mynd sem tekin var þegar á upptökum stóð

Myndbandið var frumsýnt 9 Mars 2007 á KERRANG tv.


MCR SAVED MY LIFE!?!?




Mér finnst þetta myndband vera list, Þetta er ótrúlega fallegt. Og að sjá gerard way nánast að gráta fær mann til að fara djúpt í sína eigin sál og hugsa um þá bestu tíma sem maður hefur upplifað. hann er hetja. "the savior of the broken,
the beaten and the damned?" ekki spurning.
Þegar maður horfið á þá spila live á myndböndum þá sér maður skilti í crpwdinu sem er letrað á " MCR SACED MY LIFE ! " það vill bara svo til að það er helling til í þessari settnigu.






Takk fyrir mig <3

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

29.01.2007 15:10:30 / Bjössi

Heihei.. líf

Hoffman - 60 seconds Billy

+44 - Make you smile


Jæja, hversu svakalega lang er síðan ég hef skrifað eitthvað hérna á síðuna mína sem tengist mér en ekki því sem ég geri, ef þið skiljið
Ég ákvað allavega að próa að skrifa blogg um það sem hefur verið að gerast hjá mér undanfarið sem er að vísa ekki mikið
en that's about it;;

JÓLIN; jólin voru ágætis tími, en þau voru skrítin samt, ég fann aldrei jólaspennuna sem  ég hef nánast alltaf fundið. Ég viet um marga fleiri sem fundu þetta ekki heldur í þetta skiptið en það er vonandi að þetta komi næstu jól.  Svo kom líka einn atburður um jólin, systir mín útskrifaðist úr menntaskóla "FG" btw og hefur hún núna hafið nám í háskóla íslands og er ég ótrúlega stoltur af henni að geta þetta. Hún er allsvakalega klár og dugleg manneskja og það er ekki dónalegt að vera bróðir hennar.
       Eitt í viðbót sem var geggjað. þann 20 dec fór ég ásamt Colgate (Kolbeini) á tónleika x-ins 977 sem báru nafnið X-mas frumlegt ikke?
þarna sáum við ótrúlegustu sjón sem fólk gat mögulega séð þarna og það var þegar hann Óttar í Dr. spock tók sig til og las/söng jólasögu. og maður fékk að heyra  rödd hanns. en þarna komu framm margir listamen og var þetta voðalega gott móment.


GJAFIR;; Ég vil þakka ykkur öllum kærlega fyrir gjafirnar sem ég fékk og finnst mér það æðislegt af ykkur líka, þið eruð bestu vini sem hægt er að hugsa sér.
Frænka mín hún sigga frænka veit ekki hvort eitthvert ykkar hefur hitt hana, held að hulda hafi það þó, en hún, þessi manneskja gaf mér jakkan frá BAM margera sem ég fékk áfall þegar ég sá. og faðmaði hana í klessu þið sem fílið BAM ættuð að skilja hvernig mér leið ekki satt ?
en krakkar og fjölskylda takk kærlega fyrir mig.

GAMLÁRS; það er bara siður hjá famyliunni að sprengja upp heilan helling af þessu. og ég sem er soldið mikið fyrir Eld þá hefur minns soldið gaman af => og veit eg um fleiri,, en ekki eru allir jafn varkárir með kveikjara nálægt eldfimum hárim á löpp en nóg um það.
Einnig vil ég nefa við ykkur elsku vinir að þetta ár var svakalega gott og vona ég að þetta verði betra ár. til hamingju með öll afrek ykkar á liðna árinu,

JANÚAR; Ég er ekki sáttur við konuna í MH sem vill ekki hleypa mér þarna í gegn. ég tel mig geta verið þarna einsog hvern annan MH-ling híh. því að þarna inni finnst mér ég eiga heima. En ég fór í fg aftur og er það frekar ennþá tómlegra án iðunnar en það er samt æðislegt að hitta hana í strætó eftir skóla sem hefur gerst einusinni. ég sé hvernig hún á að vera þarna.

Svo er einn helvítis skandall. veikindi! dú not læk ðem. und missa af mikklu.

Ég vil þakka ykkur fyrir að lesa þetta, veit að þetta er langt blogg en ég er hættur NEI nema að ég á Bassa núna. bara svo þið vitið það. að þá hef ég ekki sleppt honum síðan og tek ég hysteria í rassgatið


Síðast en ekki síst, Hulda Til hamingju með Afmælið. njóttu dagsins.

- Takk


» 2 hafa sagt sína skoðun